Aðalvalmynd

Upplýsingar

  • Nafn: Bergþóra Þórsdóttir
  • Netfang: bergthoraloa@hotmail.com
  • Staður: Sydals, Danmörku
  • Um mig: Ja, hvað get ég sagt?

Sitt lítið af hverju

Hvað er þetta græna?
Kallinn var að spræna

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Próf og læti

16. maí 2008 klukkan 16:43
Ég afsaka innilega bloggleysið á þessari síðu en ég hef bara verið eitthvað svo upptekin svona uppá síðkastið.  Og kannski pínu löt stundum. 

Annars er bara allt á fullu hérna og tíminn líður eins og ég veit ekki hvað.  Óhugnarlegt alveg.  Skriflegu prófin eru alveg komin á fullt og fara bara að klárast. Var í íslensku, stærðfræði og tveim dönskuprófum núna í síðustu viku og svo er bara líffræðin eftir á mánudaginn og svo náttúrulega öll munnlegu prófin í júní.  Flókna dæmi. 
Svo er bara málið að flytja núna um miðjan júní, koma svo til Íslands einhvertíman í lok júní, djamma inná kæli í Bónus, læra að drekka kók hjá Jóhönnu í sumar og fara svo í menntaskóla í haust.  Ekki? Er hrædd um það skoUllandi

Annars þykir mér leitt að segja ykkur það en ég er hreinlega bara of löt til þess að vera að blogga eitthvað svakalegt, svo ég ætla bara að skella nokkrum myndum frá gamalli þýskalandsferð sem ég og pabbi fórum í um daginn.  Eða um daginn, einhverntíman í byrjun desember (úff, talandi um að tíminn líði hratt).  



Undurfagra ljósakrónan sem við sáum í einni ljósabúðinni


Ég bara átti ekki orð yfir þessum líka rosalega smekklegu kommóðum (svooo þýskt)


Við svo sannarlega á rétta staðnum í geisladiskabúðinni


Jóhanna, ÉG pant þennan Glottandi


Þarna fórstu nú alveg með það Hansi minn.



Er eitthvað svalara en að vera þýskur kall og gefa út jólageisladisk með þýska vini sínum og láta diskinn heita Amigos? Svalur


Sérstök bílastæði fyrir kvennmenn og aumingja (og kannski homma líka)


Þessi var tekin sérstaklega fyrir þig, Jóhanna Hlæjandi


Ég kveð svo bara með þessari ágætu mynd af okkar mjög svo næringarríka heilsusamlega nesti þann daginn.

Mojn!

Bergþóra Nördiiii

07. mars 2008 klukkan 18:05
Jæja, best að gera eitthvað í þessum síðumálum og skella einni færslu hingað inn.

Það er alveg slatti búið að gera síðan síðast, get ég sagt ykkur. 
Ég get til dæmis með ánægju tilkynnt ykkur að ég er búin að sækja um í öðrum menntaskólanum hérna í Sönderborg á næsta ári.  Úff þetta hljómar illa. En já, eftir alls herjar fokk öpp hjá kennaranum mínum, svita , tár og ég veit ekki hvað og hvað komst ég nú að niðurstöðu. Ég er semsagt að fara í Sönderborg Statsskole á Stærðfræði - Eðlisfræði - Heimspeki braut á næsta ári.  Hversu nördaðUllandi  Ég verð örugglega bara með sveittum kínverjum og fitugum strákum með sítt hár sem þeir þvo aldrei og spila CS í bekk.  Það væri samt kannski bara gaman.

Annars er vikan bara búin að vera ágæt.  Sönderborgferð með Nicoline, kökubakstur með Kára og fyrverandi ástkonu hans, bankarán í Tandslet (Hlæjandi), svo toppaði náttúrulega fjarkinn í lestrarprófinu náttúrulega vikuna alveg.


Heyrðu, það var eigilega bara ekki meira að sinni. Ég ætlaði bara rétt svo að segja ykkur frá þessu með menntaskólann.  Þetta var eigilega bara lygi hjá mér áðan með að það hafði gerst mikið síðan síðast. Sorrý.

Ætla samt að skella hérna inn tveim myndum að verðandi skólanum mínum.   

Statsskolen 2

Statsskolen

Hann er nefnilega nokkuð töff, þó að hann sé með fullt af grasi og trjám utaná sér.

Bestu kveðjur,
Bergþóra nördi.


Eine Deutsche Modenmagazinen und puddingen pulveren, jaaa

12. febrúar 2008 klukkan 22:08

Hún ástkæra systir mín, Auður, er nýbúin að gera þennan líka myndarlega banner.  Ég er greinilega orðin áskrifandi af Beverly Hills bannerum.  Þetta líst mér á.
Takk Auður Koss (ljóti, ljóti kall)

Annars er ég bara hress.  Eða þannig.  Það er vetrarfrí í þessari viku og ég hef gert fátt annað en að éta, borða, sofa, horfa á sjónvarpið, borða nammi, sofa ennþá meira, horfa á þýska klámstöð með pabba mínum og borða ennþá meira nammi.  Svo má náttúrulega ekki gleyma að nefna þýskalandsferðina sem við fjölskyldan skelltum okkur í á laugardaginn.  Við keyptum alveg fullt af alls konar þýskum mjög nitsamlegum matvörum, eins og tildæmis búðingaduft (sem ég reyndi að elda, en mistókst svona líka rosalega), M&M kex, frönskur í álpoka, vínberja og perusafa, allskonar núðlur og svo náttúrulega eitt stykki þýskt tískublað með konu í limegrænum buxum með rósamynstri á forsíðunni.. geri aðrir betur? Svalur

En já, eins og þið heyrið, hef ég það bara mjög gott.  Þessari milljón bólur og þessi þrjúþúsund kíló sem ég mun bæta á mig í þessu fríi, mun ég á einhvern hátt losa mig við einhverntíman.. eða bara sleppa því Glottandi

Ég veit ekki hvað ég get meira sagt ykkur.  Hmmm. Ástkona Kára, hún Stephanie, ætlar víst að koma í heimsókn núna á morgun. ÞAÐ mun verða vandræðarlegt.  Svo ætlaði Nicoline líka að kíkja í heimsókn til mín á morgun.  Við þurfum víst að æfa kynninguna á hommaverkefninu okkar sem við vorum að gera í síðustu viku.  Það á eftir að verða fróðlegt að sjá hvernig það á eftir að ganga  Ullandi

En heyriði, fyrst að ég er bara farin að bulla, held ég að það sé skynsamlegast að kveðja bara í bili.  Mér langaði til að kveðja ykkur með einni góðri mynd af afar myndarlegum hommum, en þar sem tæknin er aðeins að stríða mér, verður það að bíða betri tíma.

Kveðjur héðan,
Bergþóra

Hommi homm :)

04. febrúar 2008 klukkan 18:45
Ég afsaka bloggleysið.. ég er einfaldlega ekki (vá, mörg e) að standa mig í þessu.  Ég skal allavega redda þessu sem snöggvast og henda einni færslu, ykkur til skemmtunar.

Það hefur að vísu ekki gerst neitt rosalegt í lífi mínu síðustu daga.  Ekki nema að Auður systir kom í heimsókn um helgina, svo það var bara stuð.  Það var til dæmis mikið hleigið af homma og Hitlerbröndurum og gert fjölskylduna léttgeðveika af þýskum þjóðlögum, spiluð á blokkflautu.  Ég nefni engin nöfn á blokkflautuleikurunum :)
Annars bakaði ég bara heimsins bestu möffinskökur úr nýju uppskriftarbókinni minni "500 muffins og cupcakes"... án efa besta bók sem ég hef lesið.
 
Annars er bara stuð hér í Danmörkinni.  Í þessari viku eigum við að gera svokallað projektopgave í bekknum mínum.  Það er svona stórt þemaverkefni sem er hluti af samrænduprófunum.  Ég er að vinna með samkynhneigð.  Það er mjög gaman sko, bara stuð :)

Hommihommihomm.

Annars hefur ekki gerst neitt rosalegt svo ég held að ég kveðji bara. Ég þarf hvort  sem er að fara að lesa bók um homma og borða grjónagraut.. eða klappa kettinum mínum á rassinum? :)

Bergþóra

Kiiiiiisi já, kallinn já

25. janúar 2008 klukkan 23:21

Hey, ég er með góða sögu:

Ég klappaði kettinum mínum á rassgatinu um daginn afþví að ég hélt að það væri hausinn á henni.

Það var ekki fleira að sinni
Bergþóra

P.S. Takk Auður kærlega fyrir þennan líka fallega banner. Bergþóra 90210, svona á þetta sko að vera :)

Splunkuný síða, fólkens

18. janúar 2008 klukkan 15:29

Já, fólkens.  Þar sem að ég er svo rosalega ósjálfstæð og mikill lúði hef ég ákveðið að gera eins og hún Elín og fá mér svona líka smekklega og glænýja heimasíðu.  Prufa eitthvað nýtt, þið skiljið.

Annars er ég bara góð.  Komin í helgi eftir ansi undarlega skólaviku, sem var stútfull af ástarmálum bróður míns, einellti vegna g-strengs notkunnar, píanóspili og rugli. Planið fyrir helgina er sko svo þokkalega bara að liggja í leti, horfa á Ugly Betty, Love Actually, borða skúffuköku og fá bólur.  Mér líst vel á mig Glottandi

En heyrðu, Beverly Hills kallar.

Lúðakveðjur,
Bergþóra

P.S. Ef þér leiðist, væri eitt stykki banner á þessa heimasíðu vel þeginn. En bara svona ef þú átt of mikinn frítíma og leiðist alveg gasalega!

Auglýsing

Könnun

Hvað er þetta hvíta?