Aðalvalmynd

Upplýsingar

  • Nafn: Bergþóra Þórsdóttir
  • Netfang: bergthoraloa@hotmail.com
  • Staður: Sydals, Danmörku
  • Um mig: Ja, hvað get ég sagt?

Sitt lítið af hverju

Hvað er þetta græna?
Kallinn var að spræna

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Splunkuný síða, fólkens

18. janúar 2008 klukkan 15:29

Já, fólkens.  Þar sem að ég er svo rosalega ósjálfstæð og mikill lúði hef ég ákveðið að gera eins og hún Elín og fá mér svona líka smekklega og glænýja heimasíðu.  Prufa eitthvað nýtt, þið skiljið.

Annars er ég bara góð.  Komin í helgi eftir ansi undarlega skólaviku, sem var stútfull af ástarmálum bróður míns, einellti vegna g-strengs notkunnar, píanóspili og rugli. Planið fyrir helgina er sko svo þokkalega bara að liggja í leti, horfa á Ugly Betty, Love Actually, borða skúffuköku og fá bólur.  Mér líst vel á mig Glottandi

En heyrðu, Beverly Hills kallar.

Lúðakveðjur,
Bergþóra

P.S. Ef þér leiðist, væri eitt stykki banner á þessa heimasíðu vel þeginn. En bara svona ef þú átt of mikinn frítíma og leiðist alveg gasalega!

Held með þér. Með Bergþórulegustu færslum sem ég hef séð!
Og vá, ég væri til í helgi sem færi í að liggja í leti, horfa á Ugly Betty og Love Actually, borða skúffuköku og fá bólur. Draumahelgi. Í stað þess þarf ég að sitja ísköld inní lítilli setustofu, fullri af sveittum MAingum í próftíð. Og lesa félagsfræðibók sem er rúmlega 300 síður. Yaaay!
En jæja, ég get huggað mig við það að næst þegar við hittumst verður pottþétt horft á misgóða sjónvarpsþætti allar nætur og sofið á daginn. Fokkjá!

(og já ég er hörð)
#1
19. janúar 2008 klukkan 00:43
Hahaha, Christmas is all around me... Bið að heilsa Billy Mack! Flott heimasíða, ég held með henni. Svakalega fín mynd af þér hérna til vinstri :) Þú ert fínni en vonda stelpan í móttökunni í Ugly Betty sem fékk gúmmíkjólinn :D
#2
19. janúar 2008 klukkan 12:46
Bergþóra ÞórsdóttirJá, sjitt hvað við skulum horfa á allar heimsins sápuóperur næst þegar við hittumst, Jóhanna

Ég skal sko skila kveðjunni til hans Billa míns. Hann er náttúrulega bara bestur. Og takk, efast reyndar um að ég væri fínni en hún, færi ÉG í gúmmíkjólinn. Hehe :)
#3
19. janúar 2008 klukkan 17:46
Sæææææll, geggjuð síða. Alveg þú ! :D
Er reyndar ekki búin að skoða hana alla en ég skal halda leið minni áfram.
Beverly Hills 90210 ? ..það er æði ;D
Peyjakveðjur,
Óskar*;
* hlær gg mikið :) *
#4
20. janúar 2008 klukkan 22:52
Elín Elísabet EinarsdóttirGóð byrjun á síðu :)

Skoðanakönnunin er mitt persónulega uppáhald...
Gaman líka að sjá myndirnar og hvað þú ert miklu betri í að byrja á síðu en ég ^^
Og þetta hljómar eins og fráááábær helgi!!! Mig langar svo að sjá Love Actually aftur, en það á hana enginn :O
.....einelti vegna G-strengs notkunar? Er ég sú eina sem vill vita meira um þetta?

P.s. Mig langar í skúffuköku núna.
#5
24. janúar 2008 klukkan 17:00
 
Rakel Ýr
Hæ :D
Flott að þú fékkst þér nýja síðu.. og flott byrjun á blogginu þar sem þú sagðist vera rosalega ósjálfstæð og mikill lúði svo þú ætlar að gera eins og Elín...! Kom fyndið út (kannski fattaru, kannski ekki...) En, kósý helgi þar á ferð.
Er að spá í að fá mér heimasíðu.. en það er bara pæling- en segi "Bless í bili" :*
#6
25. janúar 2008 klukkan 17:31
 
Rakel Ýr
Já, og ég frétti um ástarmál bróður þíns... sorry, en mér finnst þetta frekar skrýtið - líka því hún er með þér í bekk og bróðir þinn yngri... erum bara ekki vön því hér á Íslandi!
Og ég er sammála Elínu..ég vil vita meira um eineltið vegna g-strengs notkunar... búin að fá að vita um buxnamálið og vil þá vita um nærbuxnamálið... Æ, nú ætla ég að hætta að bulla.. Síjú
#7
25. janúar 2008 klukkan 17:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Könnun

Hvað er þetta hvíta?