12. febrúar 2008 klukkan 22:08
Hún ástkæra systir mín, Auður, er nýbúin að gera þennan líka myndarlega banner. Ég er greinilega orðin áskrifandi af Beverly Hills bannerum. Þetta líst mér á.
Takk Auður
(ljóti, ljóti kall)
Annars er ég bara hress. Eða þannig. Það er vetrarfrí í þessari viku og ég hef gert fátt annað en að éta, borða, sofa, horfa á sjónvarpið, borða nammi, sofa ennþá meira, horfa á þýska klámstöð með pabba mínum og borða ennþá meira nammi. Svo má náttúrulega ekki gleyma að nefna þýskalandsferðina sem við fjölskyldan skelltum okkur í á laugardaginn. Við keyptum alveg fullt af alls konar þýskum mjög nitsamlegum matvörum, eins og tildæmis búðingaduft (sem ég reyndi að elda, en mistókst svona líka rosalega), M&M kex, frönskur í álpoka, vínberja og perusafa, allskonar núðlur og svo náttúrulega eitt stykki þýskt tískublað með konu í limegrænum buxum með rósamynstri á forsíðunni.. geri aðrir betur? 
En já, eins og þið heyrið, hef ég það bara mjög gott. Þessari milljón bólur og þessi þrjúþúsund kíló sem ég mun bæta á mig í þessu fríi, mun ég á einhvern hátt losa mig við einhverntíman.. eða bara sleppa því 
Ég veit ekki hvað ég get meira sagt ykkur. Hmmm. Ástkona Kára, hún Stephanie, ætlar víst að koma í heimsókn núna á morgun. ÞAÐ mun verða vandræðarlegt. Svo ætlaði Nicoline líka að kíkja í heimsókn til mín á morgun. Við þurfum víst að æfa kynninguna á hommaverkefninu okkar sem við vorum að gera í síðustu viku. Það á eftir að verða fróðlegt að sjá hvernig það á eftir að ganga 
En heyriði, fyrst að ég er bara farin að bulla, held ég að það sé skynsamlegast að kveðja bara í bili. Mér langaði til að kveðja ykkur með einni góðri mynd af afar myndarlegum hommum, en þar sem tæknin er aðeins að stríða mér, verður það að bíða betri tíma.
Kveðjur héðan,
Bergþóra
Og ég er sátt með uppeldið hjá honum Lóa, láta þig horfa á þýska klámstöð. Hahaha :')