Próf og læti
16. maí 2008 klukkan 16:43
Ég afsaka innilega bloggleysið á þessari síðu en ég hef bara verið eitthvað svo upptekin svona uppá síðkastið. Og kannski pínu löt stundum.
Annars er bara allt á fullu hérna og tíminn líður eins og ég veit ekki hvað. Óhugnarlegt alveg. Skriflegu prófin eru alveg komin á fullt og fara bara að klárast. Var í íslensku, stærðfræði og tveim dönskuprófum núna í síðustu viku og svo er bara líffræðin eftir á mánudaginn og svo náttúrulega öll munnlegu prófin í júní. Flókna dæmi.
Svo er bara málið að flytja núna um miðjan júní, koma svo til Íslands einhvertíman í lok júní, djamma inná kæli í Bónus, læra að drekka kók hjá Jóhönnu í sumar og fara svo í menntaskóla í haust. Ekki? Er hrædd um það sko
Annars þykir mér leitt að segja ykkur það en ég er hreinlega bara of löt til þess að vera að blogga eitthvað svakalegt, svo ég ætla bara að skella nokkrum myndum frá gamalli þýskalandsferð sem ég og pabbi fórum í um daginn. Eða um daginn, einhverntíman í byrjun desember (úff, talandi um að tíminn líði hratt).

Undurfagra ljósakrónan sem við sáum í einni ljósabúðinni

Ég bara átti ekki orð yfir þessum líka rosalega smekklegu kommóðum (svooo þýskt)

Við svo sannarlega á rétta staðnum í geisladiskabúðinni

Jóhanna, ÉG pant þennan

Þarna fórstu nú alveg með það Hansi minn.

Er eitthvað svalara en að vera þýskur kall og gefa út jólageisladisk með þýska vini sínum og láta diskinn heita Amigos?

Sérstök bílastæði fyrir kvennmenn og aumingja (og kannski homma líka)

Þessi var tekin sérstaklega fyrir þig, Jóhanna

Ég kveð svo bara með þessari ágætu mynd af okkar mjög svo næringarríka heilsusamlega nesti þann daginn.
Mojn!